Oversættelsesopgave:
https://docs.google.com/document/d/12QAZGARlHuui_OdMFc3FX0wo94ak7Wd_s9B6eq0ncOw/edit?usp=sharing
Atlantbib.org er en online fagbogsportal lavet af og for klasser i hele Norden og Baltikum. Denne blog er projektets dokumentationsværktøj. Projektet er støttet af NordPlus Nordens sprog.
Læs artikel om, hvordan du kan arbejde med FNs 17 verdensmål på Atlantbib i Dansklærerforeningens medlemsblad 1/2021 side 28+29
https://issuu.com/dansklf/docs/dansk-1-2021-issuu-ny/28
Se hele artikel her:
https://www.ki.is/um-ki/utgafa/frettir-og-pistlar/skolavardan/2020/nordplus/#
Verkefni sem hlaut styrk
Verkefni sem hafa hlotið styrk úr Nordplus eru eins fjölbreytt og þau eru mörg. Eitt þeirra sem hefur hlotið viðurkenningu og eftirtekt er Atlantbib.org. Það er skólaverkefni með þátttakendum frá Danmörku, Noregi, Svíþjóð, Finnlandi, Íslandi, Færeyjum, Grænlandi, Lettlandi, Litháen og Suður-Slésvík sem og samísku svæðunum í Skandinavíu. Verkefnið hófst árið 2015 með stuðningi frá tungumálahluta Nordplus, Nordplus Språk.
Verkefnið er bókaverkefni þar sem nemendur og kennarar skrifa ókeypis fagbækur til afnota í öllum skólum. Bækurnar eru rafbækur með áherslu á það sem er ólíkt og líkt á Norðurlöndunum og baltísku löndunum í sambandi við sögu, landafræði, tungumál og menningu. Nemendur taka þátt í að rannsaka, skrifa, þýða og talsetja bækurnar áður en þær eru gefnar út. Verkefnið er opið öllum, svo allir skólar geta skrifað og þýtt bækur. Endilega skoðið heimasíðu verkefnisins og jafnvel nýtið ykkur það.